|
Guðmundur Þórðarson er sonur Þórðar bifreiðarstjóra í Kópavogi, f. 1913 - d. 2004, Guðmundssonar skipstjóra í Ólafsvík Þórðarsonar f. 1874 - d. 1919. Kona Guðmundar skipstjóra var Ólafía Katrín Sveinsdóttir húsfreyja, f. 1895 - d. 1985. Móðir Guðmundar og ekkja Þórðar, er Dagmar húsfreyja f. 1922 Axelsdóttir kaupmanns á Hellissandi og síðar stórkaupmanns í Reykjavík Clausen f. 1888 - d. 1985. Móðir Dagmarar var Anna María Einarsdóttir húsfreyja á Hellissandi, síðar í Reykjavík f. 1897 - d. 1994. Guðmundur Þórðarson útskrifaðist sem cand. juris frá Háskóla Íslands 1971 og fékk lögmannsréttindi 1975. Guðmundur hóf fyrst störf sem fulltrúi á lögmannsstofu, þá hjá Rannsóknadeild Ríkisskattstjóra, framkvæmdastjóri hjá Þýsk-Íslenska og hefur rekið eigin lögmannsstofu frá 1986. Casa firma lögmannsstofa hefur aðsetur að Hamraborg 14a Kópavogi, jarðhæð. Guðmundur hefur unnið mikið að félagsmálum, mest þó innan Ungmennafélagsins Breiðabliks í Kópavogi, meðal annars sem formaður knattspyrnudeildar þess. Þá var hann landsliðsmaður í knattspyrnu um skeið. Knattspyrnuþjálfari um 18 ára skeið, meðal annars sem fyrsti þjálfari piltalandsliðsins 1975 og fyrsti þjálfari kvennalandsliðsins fyrstu 3 ár þess, 1981-1983. |


