Icelandic(IS)English (United Kingdom)

Casa firma sér um alla lögformlega skjalagerð og samninga fyrir viðskiptamenn sína sem lögmannsverk. Það getur innifalið til að mynda erfðaskrár, kaupmála sem og skjalagerð vegna kaupa & sölu fyrirtækja, fasteigna, atvinnutækja  Þá er einnig rekin alhliða bókhaldsþónusta sem Guðmundur Þórðarson hefur yfirumsjón með, enda með fjögurra áratuga reynslu í þeim geira.

Casa firma er rekið á ábyrgð Guðmundar Þórðarsonar hdl.. Casa firma er staðsett að Hamraborg 14a í Kópavogi, jarðhæð. Einnig getur Casa firma séð um innflutning og tengda skjalagerð fyrir viðskiptavini sína.

Nafn vefslóðarinnar, firmus, er tekið úr latínu og merkir stöðugur, sterkur, áreiðanlegur og traustur.  Má í raun segja að þetta sé lyndiseinkunn Guðmundar Þórðarsonar og einkenni þjónustu hans við viðskiptavini sína. Nafnið á stofunni , Casa firma, merkir því : Traust hús.

 

Skoðunarmenn
Það getur borgað sig að fá eign,  sem maður er að hugleiða kaup á, tekna út af fagmanni áður en tilboð er gert.
Mat fasteigna
Mat.is