Icelandic(IS)English (United Kingdom)

 

 

.

 



1.0. ALMENNT UM ÞÓKNUN
1.1.
Gjaldskrá þessi gildir nema um annað hafi verið samið. Allar upphæðir í gjaldskrá þessari innihalda 25,5 % virðisaukaskatt nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þegar þóknun er ákvörðuð sem hlutfall af söluverði leggst virðisaukaskattur ofan á það hlutfall. 
1.2.
Ákvörðun þóknunar mótast af þeim fjárhagslegu hagsmunum sem tengjast því verki sem unnið er að, sbr. 14. grein laga nr. 54/1997 um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu. Söluþóknun innifelur gerð kauptilboðs, kaupsamnings og afsals. Sé unnið að verki, þar sem ekki er sérstaklega samið um þóknun, skal þóknunin fyrir verkið ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi, falli það verk ekki undir ákvæði gjaldskrár þessarar að öðru leyti. Þegar þóknun er ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi skal tímaskrá fylgja reikningi. Söluþóknun innifelur verðmat fasteignarinnar, gerð söluyfirlits, gerð kauptilboðs, kaupsamnings, kostnaðaruppgjörs og afsals. Fyrir auglýsingar og skjalaöflun greiðist sérstaklega sbr. síðar.

1.3.
Skrá sú sem hér fer á eftir er leiðbeinandi um endurgjald og sé um það samið má víkja frá henni til hækkunar eða lækkunar.
2.0. KAUP OG SALA.
2.1
A. Sala fasteigna og skipa

  1. Sala fasteigna sem eru í almennri sölu 2,6 % og skráðra skipa 6,5 % af söluverði auk vsk..
  2. Sala fasteigna sem eru í einkasölu 1,95 % , en skipa 4,5 % af söluverði auk vsk..
  3. Aðstoð og/eða skjalafrágangur við kaup og/eða sölu fasteigna og skráðra skipa 1% af söluverði auk vsk. þó aldrei lægri en kr. 80.000.- auk vsk..
  4. Sala félaga og atvinnufyrirtækja 5 - 7% af heildarsölu, þ.m.t. yfirteknar veðskuldir og ábyrgðir sem og vörubirgðir auk vsk..
  5. Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna 3 % af söluverði auk vsk. en þó aldrei lægri en kr. 50.000.-auk vsk.
  6. Endursala eignar sem áður hefur verið seld í makaskiptum 1,5 % af söluverði auk vsk..
  7. Sala sumarhúsa 5 % af söluverði auk vsk. og gagnaöflunar. Lágmarks söluþóknun samkvæmt þessum lið  þó aldrei lægri en kr. 290.000,- auk vsk. .

L   B  Makaskipti
Við makaskipti er þóknun samkv. því er fram kemur í grein 2.1, A lið. Hafi önnur hvor eignin hvergi verið til sölu skal þóknun vera 1.85% af söluverði þeirrar eignar auk vsk.
Hafi eign sem boðin er í makaskiptum verið í einkasölu hjá öðrum fasteignasala skal sá fasteignasali einn taka söluþóknun vegna þeirrar eignar samkvæmt söluumboði, enda áriti hann og ábyrgist eigin kaupsamningauk þess að koma fram fyrir hönd sinna umbjóðenda í tilboðs og samningsferlinu.
2.2.
Þóknun fyrir skjalagerð og frágang við eignaskipti þegar hvorug eignin er á söluskrá og kaup hafa átt sér stað utan fasteignasölunnar er 1,5% af söluandvirði fasteignar og skráðs skips auk vsk., en vegna félaga og atvinnufyrirtækja 3,5 – 5,5% af heildarsölu, þ.m.t. yfirteknar veðskuldir og ábyrgðir sem og vörubirgðir auk vsk., en þó aldrei lægri en kr. 80.000,- auk vsk.  
2.3.
Þóknun fyrir gerð einstaks kaupsamnings eða afsals er að lágmarki kr. 80.000,- auk vsk..
3.0. ÝMIS SKJALAGERÐ OG RÁÐGJÖF
3.1.
Þóknun fyrir að fara yfir og athuga samninga og skjöl við sölu eða kaup fasteigna og skipa eða annarra eigna sem fasteignasali, lögmaður eða annar hefur gert er samkvæmt tímagjaldi.
3.2.
Í þeim tilvikum sem gerð veðleyfa, veðbandslausna, umboða, skuldabréfa og tryggingabréfa tengist ekki kaupsamningsgerð er þóknun kr. 6.225.-.
3.3.
Þóknun fyrir munnlega ráðgjöf og leiðbeiningar er samkvæmt tímagjaldi eða föstu gjaldi eftir samkomulagi.
4.0. SKOÐUN OG MAT FASTEIGNAR
Fyrir verðmat á íbúðarhúsnæði sé fasteign ekki sett í sölu reiknast þóknun kr. 18.675.-. Fyrir skoðun og mat á atvinnuhúsnæði greiðist eftir tímagjaldi en þó að lágmarki kr. 25.000.- auk vsk. .

Fyrir skoðun og skriflegt verðmat á atvinnuhúsnæði sem ekki kemur til sölumeðferðar greiðist 0,1% af verðmatsfjárhæðinni að viðbættum virðisaukaskatti en þó að lágmarki kr. 30.000.- auk vsk. .
5.0. LEIGA FASTEIGNA
5.1.
Þóknun fyrir gerð leigusamnings um einstakt íbúðarhúsnæði skal vera gjald kr. 30.0.00,- auk vsk. og kostnaðar við gagnaöflun.
5.2.
Þóknun fyrir gerð leigusamnings um atvinnuhúsnæði skal vera grunngjald kr. 43.757,-  auk vsk. og tímagjalds sem fer í viðtöl og gagnaöflun.
5.3.
Þóknun fyrir að annast milligöngu um að koma á leigusamningi skal samsvara mánaðarleigu hins leigða auk virðisaukaskatts.

5.4.
Sé leigusamningur gerður til þriggja ára eða lengri tíma skal þóknunin samsvara tveggja mánaða leigu auk virðisaukaskatts.
5.5.
Sé leigusamningur gerður til fimm ára eða lengri tíma er áskilinn réttur til hærri þóknunar en að ofan greinir og skal sérstaklega um það samið. 
6.0. EIGNAUMSÝSLA OG SKULDASKIL
Þóknun fyrir vinnu við eignaumsýslu og gerð samninga um skuldaskil er samkvæmt tímagjaldi, sbr. kafla 9.0. Taki fasteignasalan við fjármunum sem notast til skuldaskila greiðist fyrir það samkv. tímagjaldi en þó að lágmarki kr. 37.350.-. 
7.0. ÝMIS ÁKVÆÐI
7.1Kaupandi fasteignar greiðir fast gjald, umsýslugjald, kr. 45,000,- auk vsk. fyrir þjónustu fasteignasölunnar sem m.a. felur í sér ýmiss konar ráðgjöf og aðstoð fyrir og við kauptilboðsgerð, öflun greiðslumats, gerð verðmats á fasteign kaupanda, þinglýsingarmeðferð kaupsamnings og afsals og allra veðskjala sem kaupandi greiðir með við kaupsamning og ábyrgð samfara því að þessi skjöl skili sér á rétta staði, aðstoð við veðflutninga, lögbundna hagsmunagæslu vegna ýmissa mála sem upp kunna að koma í söluferlinu s.s. vegna galla, aflýsingu og fleira.

7.2
Seljandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 15.000,- auk vsk. vegna öflunar gagna um eignir, svo sem vegna veðbókarvottorða, ljósrit teikninga og ýmissa skjala. Sé eignin ekki seld hjá fasteignasölunni greiðist kr. 15.000,- auk vsk. fyrir öflun gagna.
7.3
Seljandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 5.000.- auk vsk. fyrir skráningu eignar á internetið.

7.4
Kostnað við gerð og birtingu auglýsinga skal viðskiptamaður greiða samkvæmt gjaldskrá viðkomandi auglýsingamiðils hverju sinni. Fyrsta auglýsing seljanda, allt að 2 dálksentimetrar skal þó vera honum að kostnaðarlausu.
8.0. ÝMIS ÞJÓNUSTA


8.1. Aðstoð og skjalagerð við stofnun einkahlutafélags, hlutafélags eða sameignarfélags er kr. 35.000,- auk vsk

9.0. TÍMAGJALD
Almennt tímagjald er kr. 8.000,-, en lögmanns eða löggilds fasteignasala kr. 18.000,- að viðbættum virðisaukaskatti.